|
|
10.04.2009 15:18:30 / itá
»
30.01.2009 09:39:55 / Sandra
þar sem ég sit hér í jarðfræðitíma, og veit ekkert hvað ég á
að gera hef ég ákveðið að skella inn einu stuttu og laggóðu bloggi á þessa
síðu..
það er komið árið 2009, .. erfitt að trúa því en svona er
þetta, ég er að verða þrítug bráðum..
árið 2008 var yndislegt í alla staða. Fyrri hluta ársins var
eitt í Mexíkó í hita, sól og riningu. og síðan var haldið heim til íslands í
rigningu..
í Janúar fór ég í fyrsta sinn á Carnaval æðisleg upplifun
sem ég væri virkilega til í að endurtaka einhverntíman. Febrúar leið og beið
með sínum skemmtilegu uppákomum, ferðum á ströndina og í ánna og mars gerði hið
sama. í Páskafríinu var skellt sér til Puero Escondido og eytt nokkrum
yndislegum dögum þar í æðislegu veðri á ströndinni á daginn og síðan fullum
götum af fólki á kvöldin.. var bara æðislegt.
annars nenni ég nú ekki að telja upp allt sem ég gerði.. ég
ferðaðist mikið, fór til Acapulco, Playa del Carmen, Puerto og Veracruz og
Puebla svona milljón sinnum.. var bara æðislegt.. mætti í skólann klukkan 2
bara til þess að hitta vinina og teikna. Væri meira en til í að endurtaka þetta
ár aftur og mæli hiiiklaust með því að allir fari eitthvað sem skiptinemar..
skiptir ekki máli þótt að maður sé feiminn eða hvað sem er, engar afsakanir
til.. fyrstu vikurnar eru hræðilega erfiðar en síðan er þetta bara líf á
bleikum skýum, hver dagur skemmtilegri en sá í gær.
En jáá.. það er ekki alltaf hægt að vera í paradís.. í Júlí
var ég send í sólarhrings verð og aftur á klakann þar sem að tók á móti mér
rigning og rok, hið týpíska íslenska veður.. og til þess að toppa allt var ég
send í Skinney að vinna.
Sumarið á íslandi var ekki eins og í Mexíkó en það var mjöög
fínt þar sem að maður fékk að eyða tíma með familíunni eftir að hafa verið í
burtu í ár. Haustið bar ekkert merkilegt í skauti sér nema skóla, heimavinnu,
morgunæfingar og vinnu á N1.. leiðigjart og venjulegt
auðvitað komu nokkrar skemmtilegar helgar inn á milli svo að
ofan á allt var þetta alveg bærilegt. Jólin voru æðisleg þar sem að ég var búin
að hlakka til að fá laufabrauð, rjúpu, piparkökur og konfekt í alltof marga mánuði.
og svo er bara komið árið 2009, tvær annir eftir af
framhaldskólanum og síðan tekur bara við alvara lífsins.. ákveða hvað skal gera
af sér í framtíðinni ;S
ég held að það þýði ekkert annað en að vera bara opinn fyrir
öllu og grípa hvert tækifæri sem gefst, enda höfum við stöllurnar íhugað í
nokkurn tíma að vinda okkur í Höfuðborgina næsta haust og ef ekki þá til
útlanda í smá nám næsta vor.. en eins og ég segi.. opnar fyrir öllu og til í
allt! ;D
Annars hef ég ekki meira að segja í bili, skóli til 5 í dag,
á föstudegi.. jafn spennandi og það er og síðan helgarfrí.. por fin!
Opin vika á næsta leiti sem endar með aaawesome árshátíð,
söngvakeppni framhaldsskólanna 4 apríl og páskafrí.. og lengra fram í tímann
hugsa ég ekki í bili.
Cuidanc y hasta pronto!
looos quiero muucho! ;**
Sandra kveður fyrir hönd las
sobrinas.. hoho
»
25.12.2008 14:51:13 / sunna
»
15.12.2008 11:45:47 / itá
»
19.11.2008 23:17:45 / itá
 Næsta föstudag, 28. nóvember, ætla Rottweiler hundarnir að koma aftur í
fjörðinn okkar fagra, og halda tónleika í Sindrabæ, en þeir hefjast á
slaginu 00:00. Að tónleikum loknum, eða einhvertíma milli 01 og 02
tekur svo sjálfur HERRA ÍSLAND, öðru nafni Óli Geir, við með skífu
skratchi og dúndrandi bassa fram á rauða nótt! Þess má til
gamans geta að Jón Sölvi á Kokknum ætlar að vera með opið langt fram
eftir, þannig að balli loknu bíða okkar ólgandi hamborgarar! Býst við að enginn láti þetta framhjá sér fara! Húsið
opnar klukkan hálf 12, og kostar miðinn 2500 kr, nema að sjálfsögðu að
þú ert meðlimur Nemendafélags FAS, þá færðu miðann á 2000 kr. ! Þess
má geta, að í ljósi undangenginna atburða eru komnar nýjar reglur
varðandi dansleikjahald, og er því _meðal annars_ NAUÐSYNLEGT að þeir
sem ætli að mæta kaupi sér miða FYRIR föstudaginn, en forsalan hefst á
mánudaginn hjá Nemendaráði. Hægt er að taka frá miða, en það þarf að
borga fyrir klukkan 12:25 á föstudaginn. Einnig er hægt að tala við
Bryndísi Ósk. Þeir sem eru ekki í nemendafélaginu þurfa líka að koma
sér á sérstakan gestalista, og þurfa því að hafa samband við
nemendaráð. ömglat Sjáumst hress!!!! - Nemóz
VIÐ FRÆNKUR ERUM KOMNAR HEIM FRÁ TENERIFE OG ÉG ER SVO INDÆL AÐ ÉG SETTI INN MYNDIR,
HÉR TIL HLIÐAR FYRIR TREGA.
»
31.10.2008 15:30:30 / itá
Smá dæmisaga vegna hinnar svokölluðu "kreppu" Íslensk kona hefur verið að
styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði
það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og
gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og
góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður
árangur væri lykillinn að því að hann fengi áframhaldandi styrk.
En
allt er breytingum undirorpið í henni veröld og ýmislegt getur vissulega haft
áhrif á afkomu Frónbúans og getu hans til að láta gott af sér leiða. Hún var
að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála
hér á landi, þ.e. kreppunni og öllu því. Og það gæti því miður reynst
nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna
megin. Það eru nefnilega tiltölulega litlar líkur á því að fréttir af
Íslenska skipbrotinu hafi borist alla leið til hans þarna í Entebbe. Og svo
er alls ekki víst að hann skilji alvöru málsins á sama hátt og við hér heima.
En ef reynt væri að útskýra hið Íslenska kreppuástand fyrir honum sem virðist
ætla að fara langt með að sliga þjóðina einhver þó nokkur ár inn í
framtíðina, gæti það samtal orðið á eftirfarandi nótum.
*Heyrðu
félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!
Hvað
segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum
og maís?
*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn
vöruskortur.
Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þiðþá
ekki þak yfir höfuðið lengur!
*Jú við eigum reyndar íbúð eins og
flestir og það eru fáir heimilislausir á Íslandi.
En hvað segirðu mér
þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið
lamað?
*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og
erum með ágætt heilbrigðiskerfi.
Nú jæja. Það var gott að heyra. En
eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að
lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.
*Jú reyndar er 99,9% læsi á
Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki
síður en karlar.
Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda
ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.
*Uuuu við erum reyndar ekki
með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á
bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem
við munum líklega komst næst því að fara í stríð.
Ok. Segðu mér nú
samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.
*Við eigum reyndar besta vatn
í heimi.
Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota
asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru
alltaf yfirfullir.
Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að
ganga?
*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér
eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir
eru á nýlegum bílum.
Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur
glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.
*Flestir
eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta
hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og
utanlandsferðunum verður að fækka.
Já, ég á kannski einhvern tíma eftir
að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu
og þurfið þið núna öll að betla?
*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en
við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem
þeir unnu.
Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól,
heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og
samgöngur eru góðar.
Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?
Eftir
þessar vangaveltur um aðstæður okkar hérna uppi á skerinu og þetta ímyndaða
samtal, ákvað hún að vera ekki að íþyngja honum með ræfilslegum áhyggjum
sínum af "gjaldþrota" eyríki norður í ballarhafi. Námsgjöld hans skulu greidd
hér eftir sem hingað til og kannski fær hann líka smá vasapening með. Hann
getur þá kannski tekið strætó í skólann endrum og sinnum í stað þess að þurfa
ganga í marga klukkutíma eins og venjulega. Fé hins meinta íslenska
terrorista yrði þá líklega bara vel varið.
»
15.10.2008 09:08:46 / itá
 PANTIÐ MIÐA STRAX HJÁ NFFAS
»
03.10.2008 09:39:07 / sunna
Myndir frá helginni komnar inn! - LokahófSæll fólkið. Helgin á næstu misserum (hvað sem það þýðir) ooog liggur ekkert annað fyrir en svakalega skemmtun þessa stórfenglegu helgi  . Lokahóf sindra er á laugardaginn á morgunn s.s. og allir bíða spenntir eftir því, Strákarnir frá rvk eru einmitt að renna í bæinn og verða að sjálfsögðu viðstaddir á morgunn : ) Svo er eitthvað líka djamm í kvöld maður sér til hvað maður gerir, það kemur bara allt í ljós. ætlaði nú annars ekkert að hafa þetta langt. það koma myndir eftir helgi og vonandi annað blogg um eitthvað skemmtilegt, * vorum klukkaðar af Valdísi ætla að klára það bara hér og nú. yfir og út. 4 störf.
Bakarí
Skinney
Bæjarvinunni
passa
4 bíómyndir
another cindirella story
mirror
Kung Fu Panda get smart
4 staðir sem ég hef búið á
Hornafjörður
Hornafjörður
Hornafjörður
og mánuð í bretlandi
4 sjónvarpsþættir
gossip girl
oth
desperate housewives
greys anatomy
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
Reykjavík
Króatía
Reyðará
Rhotos
4 netsíður
www.fotbolti.net
www.facebook.com/sunnajons eða e-h veit ekki haha
www.myspace.com/sunnajons
www.sobrinas.central.is
fernt matarkyns
kjúlli
humar
taco pönnsur
pitsa
4 óskastaðir akkúrat núna Heimahjámér, ekki í skólanum
ja og aftur heima eða e-h skemmtilegt... .. ..
»
28.09.2008 17:47:07 / itá
jájá, það er að koma nýtt blogg.. hverjum hefði dottið það í hug. Ég er búin með allan lærdóm í augnablikinu, búin að fara út að hlaupa í dag og ligg núna uppí rúmmi að slaka á. Hefði ekkert á móti því að fara sofa bara núna og vakna í fyrramálið í skólann. Í gærdag eftir landsleikinn og man.utd. leikinn héldum við fimm fræknu uppí lón og fórum í sumarbústað, vorum komin þangað um 5 eða 6 leitið og var þá strax komið sér fyrir í sófunum og byrjað að vinna. Okkur gekk svo rosalega vel að þessi vetur verður nokkuð góður held ég, miðað við að nemendaráðið sé undir smásjá og það er fylgst með hverju fótspori okkar. Helgin þegar vetrarfríið er, er einmitt fullplönuð, eitthvað að gerast alla dagana held ég, þannig allir ættu að skella sér heim í vetrarfrínu. Næstu helgi er líka eitthvað að gerast og á laugardeginum er svo lokahóf hjá okkur í mfl. vona að það takist nú vel í þetta skiptið  Á föstudaginn var það 100% að við værum að fara flytja, og flytjum við út eftir ekki meira né minna en 10 daga og eru gömlu aðeins byrjuð að týna ofan í kassa og svona, allar bækur og svol. farnar í kassa, það styttist í að það verði frekar tómlegt hér.. Sem er bara gaman, flytjum já út eftir 10 daga og setjum í gám svo munum við búa á götunni og þegar vetrarfríið í FAS er, 17 okt eða þá, þá fáum við hitt húsið.. o sjit, mig langar í adrenalíngarðinn, bara fólk næst þegar ég kem til rvk þá ætla ég að draga eitthverja af ykkur með mér svo verið viðbúin  Og ég hef ekkert að segja,ætlaði að segja eitthvað svo geðveikt merkilegt eeen eg man ekki svo ég hvet alla til að koma á viðburði nemendaráðsins næstu helgar því við munum ekki svíkja ykkur, þeir verða eflaust í svipuðum dúr og busaballið  Heyri í ykkur, ég er farin að gera eitthvað viturlegt.. Kannski eins og sofa..
»
15.09.2008 11:02:47 / itá

Tími á blogg, ég heeld það nú. Þessi síða er nett léleg, en mér til mikillar ánægju er hún frænka okkar dugleg að taka myndir og setja hérna inn, mikil ánægja..
Einmitt í þessum töluðu orðum á hún að setja myndirnar frá helginni inn. Við frænkur skelltum okkur einmitt til reykjavíkur um helgina í mjög svo vel heppnaða ferð. Reyndar sofið lítið og núna líður mér eins og skít í skólanum, deyja úr þreytu og vel þreytt í fótunum, allir útí marblettum..
Gaman af þessu, nú er maður byrjaður í framhaldskóla og sit herna og á að vera gera langtímaplanið mitt fyrir framhaldskólann og það er nú frekar flókið þegar maður er ekki búinn að ákveða hvað maður ætlar að taka skólann á mörgum árum og hvert út maður ætlar eftir skólannog hvað maður ætlar að gera, hvað lengi og veit ekki hvað og hvað. Sandra geðveika er einmitt að taka framhaldskólann á 2 og hálfu ári og ég veit nú ekki aaalveg hvort maður nenni því, held að 3 og hálft væri betra eða jafnvel 3, vinna í hálft og svo út. Keeemur í ljós, keemur í ljós. En ætli maður flytji samt ekki í bæinn á næsta ári, stefni að því en maður veit svo sem aldrei.
Það styttist í Barbados hjá okkur, og verður það alltof geðveikt. Held það séu um 10 sundlaugar á hótelinu og aaallt til alls. En á undan er nú uppskeruhátíðin og miðannarfríið, sem við frænkur ætlum eflaust að nota til að skreppa til reykjavíkur. Næstu helgi er svo busaball hjá okkur og öldungamót hérna á Hornafirði, iformi.is .. æji, það er ýmislegt á döfinni.
Fattaði allt í einu að ég hef ekkert að segja, fótboltinn löngu búið og allt í kjurrum kjörum, rólegar æfingar svo nú eru úti hlaupin tíð hjá manni, er að byrja að þjálfa á morgun og nóg að gera.
Heyrumst aftur eftir nokkra mánuði ef ég þekki mig rétt 
»
26.08.2008 15:45:23 / sunna
Betra seint en aldrei. Myndirnar eru þá allavega komnar núna.Búin að fá tölvuna mína og RÉTT hleðslutæki loksnins. Annars er skólinn bara byrjaður og allt að fara í gang rosa fínt, þetta er ágætt. en ætla ekki að hafa þetta langt langað bara að minna á myndirnar sem eru aðeins nettar ;D  
»
20.08.2008 16:40:57 / sunna
Jæja kom að því. Ætlaði reyndar ekki að blogga fyrr en ég fengi tölvuna mína en hún er ennþá ooofur ekki komin þurfti einmitt að skipta um móðurborð í annað skipti innann árs í henni, já má segja að þetta eintak af svona tölvu hafi verið frekar gölluð. ;/ nóg um það. helst á dagskrá þetta sumar var SKINNEY og já frá morgni til kvölds. lifði það allavega af. EEEEn þrátt fyrir langt og strangt sumar í skinney var gert ýmislegt annað af sér ekki jafn mikið og ég ætlaði mér en eitthvað af því allavega, renna smá í gegnum þa kannski Skólinn kláraði rosa gaman, held það hafi verið próflokadjamm en ég missti af því minnir mig skellti mér til Króatíu með familien sem var ágætt að komast í smá sól í 2 vikur svo meðan ég var úti voru nokkrir sem tóku vel á því á sjómannadagsballi sem hefði verið gaman að komast á, en kom heim helgina eftir það minnir mig. man ekki alveg svona langt aftur í tíman hvað ég gerði þegar ég kom heim og hvað var að gerast á þessum stórskemmtistað hornafirði e allavega byrjaði fótbolta sumarið alveg á fullu og maður byrjaði að stunda hann af fullum krafti og skinney það var ágæisblanda og inná milli hitti maður vinina og kæró rosa fínt. já var einmitt þarna þegar ég kom heim úr króatíu að byra æfa eftir að hafa slitið 2 liðbönd í ökkla sem er ennþá að bögga mig sem er ekki gaman. Jújú átti svo afmæli 20 júní, gerði eigilga ekki neitt á afmælinu mínu nema mamma bakaði ofur gott apple pie fyrir mig en annars var það bara skinney pinney. össs svo liður vikurnar bara íja átti ammó 29.júní og svo helgina eftir það kom hátíð á höfn sem var náttúrlega bara snilld. jújú maður fékk sér smá í aðra tánna þá helgi og fannst mér hún bara ótrúlega vel heppnuð þrátt fyrir fámenna humarhátíð í ár. og ég fékk hælsæri eftir skóna hennar múttu og er örugglega ennþá með dansaði svo trylltann dans hvað var svo á eftir humarhátíðinni ? man ekki alveg... Ekkert var allavega að gerast í firðinum fagra fyrir utan það að mín heitt elskaða Sandra Rán kom heim og er bestust. Tíminn leið bara í skinney ekkert sérstaklega hratt en þetta kom allt saman með hjálp sigurbjargar sem bjargaði lífi mínu og örugglega margra aðra með skemmtun hún er æði. Svo leið að L.ung.A eða hvernig sem þetta er skrifað og já ætlaði ég mér nú eigilega á það. Þangað til ég var send með sjúkraflugi til rvk með einhverja sýkingu sem læknarnir voru nú alveg tregir að finna út. ahh þetta var ekki skemmtiferð, þufti að liggja á spítala eina nótt með í æð mátti ekkert borða né drekka bara fá nálar inní mig og taka blóðprufur úr mér djöfulsins ógeeeeð ! tvær helgar eftir það minnir ig var bræðslan sem ég var búin að bíða eftir allt sumarið með damian rice og sálar tónleikar á egs um leið eeeen ég og sandra erum svo sneddí að við tókum bæði í einu rosalega fínt maður ;D en sálartónlleikarnir stóðu uppúr í þeirri ferð ;P ooofur geðveikt. svo var það versló núna bara byrjun ágúst, planið var ekki alveg ákveðið ég og sandra (iðunn var í noregi  þannig fórum bara 2 ) vorum ekki alveg með þetta á hreinu fyrr en kl hálf2 á föstudeginum ætluðum þarna til eyja á föstudeginum þangað til kl hálf2 gugnuðum á því, vorum ekki alveg í stemmarra að fara tvær til eyja, hehe, en allavega þá enduðum við á Akureyri með Hödda og Jóhani Helga sem var þarna alveg hreint fínasta fínt. Mæsa okkar var líka á staðnum og fleiri fólk sem tjölduðu þarna hjá okkur. Ný dönsk ball á föstudeginum. Sálin oooofur geðveik á laugardeginum svo var ekkert spennandi á sunnudeginum þá brunuðum við á norðfjörð á neistaflug og tókum nýdönsk þar. og svo heim á laugardeginum. þetta var bara mjög gaman  en æsta sumar verður náttúrlega miklu betra og þá verður líka skellt sér til eyja í góðra vina hópi. er það ekki krakkar ?? !!! svo er ég búin að taka eitt brúðkaup þetta árið sem var mjöög skemmtilgt og annað á dagskrá á laugardaginn og eitt í september. Skólinn svo að byrja á mánudaginn sem ég er ekki alveg að fíla. en jæja kannski ágætt.. nema einar kallinn er að fara í bæinn í háskólann þannig maður skellir sér kannski stundum í bæinn í vetur !! næsta bæjarferð er áætluð 5-7 sept. með stúlkonum mínum í sobrinas. vantar ýmislegt fyrir skólann og smá föt kannski. Busunin svo 31 eða eitthvað svoleiðis, djöfull killa ég íju mína þar. hohooh.. (ástæðan fyrir mynd leysi í þessu bloggi eeeer að ég er ekki ennþá komin með tölvuna mína og myndirnar eru ímyndavélinni, en það kemur sem fyrst á netið ! ) Verður eflaust aðeins betri að blogga í vetur. guuuð það nennir enginn að lesa þetta. Hunskisti samt til þess  Sunna kveður.
»
06.08.2008 00:11:20 / itá
Hlakka til að sjá ykkur beibís 
»
21.07.2008 21:20:14 / Sandra
;" /> ; font-family: Tahoma;" /> ; font-family: Tahoma;">  VERTU ÞAR!! - myndir frá humarhatiðinni - frettir
kanski smá rétt að rifa þessa síðu aðeins upp á r***hárunum? nenni nú samt ekki að skella inn einhverju miklu..
maður er bara kominn aftur á jörð ís og klaka og maður finnur sko aaaldeilis fyrir því alveg hrillilega kalt! annars er maður bara að reyna að komast aftur inní rútínuna.. vinna, æfa, sofa.. soldið svona erfitt eftirs árs frí.. getið ekki ýýmindað ykkur hvað þetta var næs ár.. gjörsamur lúxus! annars er maður bara aðeins að reyna að venjast því að vera einn aftur, svooldið erfiðara og einmanalegra en ég hélt, en vonandi kemur þetta bara 
annars veit ég ekkert hvað ég get skrifað.. iðunn skellti sér á lunga síðustu helgi, sunna á fyrsta farými í útsölur og ég eyddi helginni bara í ró með familíunni að sakna hins hlutans..
gaaaaaman af því, skelli kanski inn einni mynd, en læt þetta annars vera gott í bili!
»
11.07.2008 22:15:52 / sunna
VIÐ ERUM AÐ TALA UM AÐ SANDRA
SÉ AÐ KOMA HEIM Á MORGUNN .
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Heimsóknir
Í dag: 31 Alls: 260445
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 10 apríl
|